Þjónusta

Vefsíðugerð sem lítur vel út og selur.

Við teiknum hverja síðu frá grunni fyrir eitt fyrirtæki. Hún er hröð, virkar í öllum símum og gerir fólki auðvelt að bóka, panta eða senda fyrirspurn.

Innifalið

Hvað er innifalið

Hönnun í þínum stíl
Virkar í öllum símum
Bókanir, pantanir eða greiðslur
Íslenska og enska
Grunnur fyrir Google frá byrjun
Google Analytics og Meta Pixel
Lén, hýsing og SSL
Þú átt síðuna og lénið

Hvað gerir síðu góða?

Hún lítur jafn vel út og fyrirtækið er í raun. Hún finnst þegar fólk leitar. Og það er auðvelt að hafa samband eða kaupa. Við hönnum með þetta í huga.

Síminn fyrst

Flestir skoða síðuna þína í símanum. Við byrjum því þar og höldum síðunni léttri svo hún opnist hratt.

Textinn skiptir máli

Við skrifum textann með þér, á góðri íslensku. Og á ensku ef þú vilt ná til ferðamanna.

Hentar þér ef

  • Gamla síðan er orðin þreytt eða virkar illa í síma
  • Þú vilt fá bókanir eða fyrirspurnir beint af síðunni
  • Þú vilt líta betur út en samkeppnin
Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

1

Spjall

Við heyrum í þér í 20–30 mínútur og kynnumst rekstrinum. Engin skuldbinding.

2

Forsýn

Við hönnum nýju síðuna og sendum þér hana. Þú prófar hana í símanum.

3

Smíði

Ef þér líst á klárum við síðuna, tengjum lénið, bókanir og mælingar og prófum allt.

4

Opnun

Síðan fer í loftið og við skráum hana hjá Google. Svo sjáum við um að allt gangi vel.

Spurningar

Vefsíðugerð: algengar spurningar

Hvað kostar vefsíða hjá ykkur?

Frá 249.000 kr. Þú færð fast verð eftir fyrsta spjallið, áður en við byrjum.

Sé ég síðuna áður en ég borga?

Já. Við gerum forsýn sem þú getur prófað í símanum. Svo ákveður þú.

Get ég breytt síðunni sjálfur?

Já, ef þú vilt. Við getum sett upp einfalt kerfi svo þú getir breytt texta, myndum og opnunartímum.

Hver á síðuna?

Þú. Hönnunin, textinn og lénið eru þín.

Fá fría forsýn

Byrjum á frírri forsýn.

Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu. Við sendum þér verð og forsýn af nýju síðunni áður en þú ákveður þig.

Við svörum innan eins virks dags.