Þjónusta

Auglýsingar sem skila sölu, ekki bara lækum.

Læk borga ekki reikningana. Við gerum auglýsingar sem grípa fólk strax, sýnum þær réttu fólki og mælum hvað hver króna skilar.

Innifalið

Hvað er innifalið

Plan og markhópar
Hönnun á auglýsingum
Facebook og Instagram
Google-leit
Lendingarsíða ef þarf
Mælingar á sölu og fyrirspurnum
Stöðugar prófanir
Mánaðarleg skýrsla

Fyrsta sekúndan

Fólk flettir hratt. Auglýsingin þarf að grípa strax og segja skýrt hvað þú býður.

Rétta fólkið

Við stillum auglýsingarnar á svæði og áhugamál svo peningarnir fari til fólks sem er líklegt til að kaupa.

Hver króna mæld

Við mælum fyrirspurnir, bókanir og sölu. Það sem virkar fær meira og slökkt er á hinu.

Hentar þér ef

  • Þú ert með vöru eða þjónustu sem fólk vill
  • Þú getur svarað fyrirspurnum fljótt
  • Þú vilt prófa í að minnsta kosti þrjá mánuði
Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

1

Spjall

Við heyrum í þér í 20–30 mínútur og kynnumst rekstrinum. Engin skuldbinding.

2

Forsýn

Við hönnum nýju síðuna og sendum þér hana. Þú prófar hana í símanum.

3

Smíði

Ef þér líst á klárum við síðuna, tengjum lénið, bókanir og mælingar og prófum allt.

4

Opnun

Síðan fer í loftið og við skráum hana hjá Google. Svo sjáum við um að allt gangi vel.

Spurningar

Auglýsingar: algengar spurningar

Hvað þarf ég að eyða miklu?

Það fer eftir markmiðunum. Við mælum með að byrja hóflega, sjá hvað virkar og bæta svo í.

Gerið þið auglýsingarnar?

Já. Við hönnum auglýsingarnar og klippum stutt myndbönd úr myndum og myndböndum sem þú átt.

Á ég auglýsingareikningana?

Já. Þeir eru á þínu nafni og þú hefur alltaf aðgang.

Fá fría forsýn

Byrjum á frírri forsýn.

Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu. Við sendum þér verð og forsýn af nýju síðunni áður en þú ákveður þig.

Við svörum innan eins virks dags.