Leitarvélabestun svo fólk finni þig á Google.
Fæstir fletta lengra en efstu niðurstöðurnar. Við sjáum til þess að Google skilji hvað þú gerir og hvar þú ert, svo þú birtist ofarlega þegar fólk leitar.
Hvað er innifalið
Grunnurinn
Fyrst lögum við tæknimálin: hraða, fyrirsagnir, myndir og tengla. Þá getur Google lesið síðuna án vandræða.
Réttu orðin
Fólk leitar á sinn hátt, oft með stuttum orðum og stundum án íslenskra stafa. Við finnum orðin sem þínir viðskiptavinir nota.
Kortið
Hjá flestum íslenskum fyrirtækjum skiptir kortið jafn miklu og leitin. Við setjum upp Google Business Profile svo þú sjáist þar.
Hentar þér ef
- Fólk leitar að því sem þú selur en finnur þig ekki
- Viðskiptavinir finna þig á Google eða í kortinu
- Þú vilt heimsóknir sem kosta ekki á hvern smell
Svona gengur þetta fyrir sig
Spjall
Við heyrum í þér í 20–30 mínútur og kynnumst rekstrinum. Engin skuldbinding.
Forsýn
Við hönnum nýju síðuna og sendum þér hana. Þú prófar hana í símanum.
Smíði
Ef þér líst á klárum við síðuna, tengjum lénið, bókanir og mælingar og prófum allt.
Opnun
Síðan fer í loftið og við skráum hana hjá Google. Svo sjáum við um að allt gangi vel.
Leitarvélabestun: algengar spurningar
Hvenær sé ég árangur?
Oft sjást fyrstu breytingar á nokkrum vikum. Mesti árangurinn kemur á nokkrum mánuðum.
Getið þið lofað fyrsta sætinu?
Nei. Það getur enginn gert heiðarlega. Við lofum vandaðri vinnu og sýnum þér árangurinn í hverjum mánuði.
Þarf ég nýja síðu?
Ekki endilega. Við skoðum núverandi síðu fyrst og segjum þér hreint út hvort borgi sig að laga hana.
Byrjum á frírri forsýn.
Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu. Við sendum þér verð og forsýn af nýju síðunni áður en þú ákveður þig.