Fróðleikur

Hvernig kemst ég ofarlega á Google?

Það er engin töfralausn til. En þessi sex atriði gera mestan mun.

1. Google Business Profile

Prófíllinn birtist á kortinu og hægra megin í leitinni. Fylltu út allt: opnunartíma, myndir, þjónustu og lýsingu.

2. Hröð síða sem virkar í síma

Google skoðar hvernig síðan virkar í síma. Hæg síða tapar fyrir hraðri.

3. Orðin sem fólk notar

Ef fólk leitar að „vefsíðugerð“ en síðan þín talar bara um „stafrænar lausnir“ tengir Google þig ekki við leitina.

4. Ein síða fyrir hverja þjónustu

Hver þjónusta og hvert svæði á skilið sína eigin síðu með skýrri fyrirsögn.

5. Umsagnir

Góðar umsagnir á Google hjálpa bæði fólki og Google að treysta þér. Biddu ánægða viðskiptavini um umsögn.

6. Þolinmæði

Þetta tekur tíma. Fylgstu með í Google Search Console og haltu áfram að bæta síðuna.

Viltu sjá hvernig nýja síðan þín gæti litið út?

Við hönnum fría forsýn áður en þú ákveður þig.

Fá fría forsýn